Hvað er að vera móðir?

Hvað er að vera móðir?  Er móðir sú sem að á alltaf að vera vel til höfð. Hafa alltaf hreint heimili og mat tilbúin á ákveðnum tíma. Sú sem að er best og skammar þig aldrei. Getur gert 5 hluti á meðan hún talar í símann? Nei kannski einhverjar súpermæður, ekki ég. Hver kannast ekki við að vakna á morgnanna og ætlað að vera með allt tilbúið kvöldið áður. En svo er ekki það eru allir að flýta sér og það þarf að klæða börnin og hafa til morgunmat . Greiða sér, mála sig og klára að hafa alla til. Minna kallinn á allt sem hann þarf að gera. Svo eru allir á leið út á síðustu sekundu. Flesstar konur vinna svo fullan vinnudag, eiga svo eftir að sækja börnin, versla og gera húsverkin. Ég öfunda þær sem þetta geta, ég á alveg fullt í fangi og ekki vinn ég eins og er. Sé um heimili 3 börn í leikskóla og mann. Hef varla tíma fyrir sjálfan mig. Við reynum að geta gert allt á sem stystum tíma og öfundum þær sem það geta. Ég er hætt að hugsa um hvernig aðrar konur gera og skrifa bara í rykið.


Höfundur

Hildur
Hildur
Þreytt móðir í útvherfi.

Eldri færslur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 122

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband